Einstök matarupplifun

Decorative bubble

Hefur þú farið út að borða í gróðurhúsi?

Komdu og njóttu einstakrar matarupplifunar á veitingastaðnum okkar, þar sem tómatarnir vaxa allt um kring! Tómatsúpa og nýbakað brauð ásamt öðru góðgæti í notalegu umhverfi innan um plönturnar. Nauðsynlegt er að bóka borð fyrirfram.

Meistarakokkurinn

Einn af hinum mörgu góðu nágrönnum og samstarfsmönnum Friðheimahjónanna er meistarakokkurinn Jón K.B. Sigfússon. Hann hefur þróað og hannað allar afurðir Litlu tómatbúðarinnar og veitingastaðarins í samstarfi við Knút og Helenu. Jón er hokinn af reynslu og hefur starfað víða og eldað fyrir marga af þjóðhöfðingjum heimsins. Jón er líka afburðasnjall ljósmyndari og hefur tekið margar af þeim myndum sem prýða ylræktarsýninguna í gestastofunni, bæklinga og vef Friðheima.

Við höfum opnað

Vínstofa Friðheima

Vínstofa Friðheima er vín- og vinnustofa staðsett í einu elsta gróðurhúsinu okkar í landi Friðheima. Þar er hægt að koma og setjast í gæða vínglas eða kaffibolla, hitta vini, lesa bók eða vinna. Vertu hjartanlega velkominn, ekki er þörf á að bóka fyrirfram.

Í Vínstofunni bjóðum við upp á þrjú fullbúin fundarherbergi sem eru tilvalin fyrir fundi og vinnustofur fyrir vinnustaði og smærri hópa (max 20 manns). Bókanir fara í gegnum [email protected]

Decorative Bubble
Decorative Bubble

Litla tómatbúðin

Í Litlu tómatbúðinni okkar finna alls kyns vörur framleiddar úr okkar uppskeru. Litla tómatbúðin er opin alla daga frá kl. 9:00 til 17:00 sem og allan sólarhringinn hér á netinu. Bæði er hægt að panta og sækja hjá okkur í Friðheimum og fá sent heim.