Kíktu í heimsókn

Decorative bubble

Við tökum vel á móti bæði einstaklingum og hópum, í gróðurhúsin okkar sem og hesthúsið. 

Gróðurhúsaheimsókn

Gestir fá innsýn í ræktunina með stuttum og fræðandi fyrirlestri – en í raun er ótrúlegt að hér á þessu dimma og kalda landi skuli vera hægt að rækta grænmeti í Miðjarðarhafsloftslagi – og það allt árið!  Í gestastofunni má líka skoða sýningu um ylrækt á Íslandi. Þá er hægt að taka gómsætar minningar með sér heim, því nú eru til sölu í Friðheimum matarminjagripir á borð við tómatsultu, gúrkusalsa og tómathressi.
Heimsókn í gróðurhúsin er í boði frá kl. 9:00 – 17:00 allan ársins hring en nauðsynlegt er að bóka fyrir fram.

Matarupplifun

Hefur þú farið út að borða í gróðurhúsi? Komdu og njóttu einstakrar matarupplifunar á veitingastaðnum okkar, þar sem tómatarnir vaxa árið um kring! Tómatsúpa og nýbakað brauð ásamt ýmsu öðru góðgæti í notalegu umhverfi innan um tómatplönturnar.
Veitingastaðurinn er opinn frá kl. 11:30-16:00 alla daga ársins.
Mikilvægt er að bóka fyrir fram á síðunni eða í gegnum [email protected]

Hestasýningar

Á sumrin er hestasýningin „Stefnumót við íslenska hestinn“ í algleymingi. Það er sögu- og gangtegundasýning sem er hvort tveggja fræðandi og skemmtileg og er til á hvorki fleiri né færri en fjórtán tungumálum. Undir sýningunni hljómar hressileg og taktföst íslensk tónlist. Sýningin veitir innsýn í eitt merkasta hestakyn heims, sem hefur verið samofið íslenskri menningu og þjóð í gegnum aldirnar. Eftir sýninguna er gestum boðið í hesthúsið, þar sem heitt er á könnunni, hægt er að spjalla við hesta og menn og taka myndir til minningar um góða upplifun.
Sýninguna „Stefnumót við íslenska hestinn“ er hægt að bóka fyrir hópa að lágmarki 15 manns, og er sýningartímabil frá 1. maí  til 30. september.
Upplýsingar og bókanir fyrir hópa í síma 486 8894 og á netfangið [email protected]

Hesthúsaheimsóknir

Íslenski hesturinn er þekktur fyrir fjölbreytni í gangi og litum; styrk, hreysti og góða lund. Gestum er boðið í hesthúsið og þeim veittur fyrirlestur um íslenska hestinn og einnig er sýning á einum hesti í reið – allar fimm gangtegundirnar. Hestarnir í hesthúsinu taka vel á móti gestum og boðið er upp á kaffi og te.
Heimsókn í hesthúsið er í boði allan ársins hring en nauðsynlegt er að bóka fyrir fram.
Upplýsingar og bókanir fyrir hópa eru í síma 486 8894 og á netfangið [email protected]

Vínstofa Friðheima

Vín- og vinnustofa í gömlu gróðurhúsi. Þar er hægt að koma í vínglas eða kaffibolla, hitta vini, lesa bók, vinna einn eða með öðrum, funda, koma í matar- og vínupplifun og á skemmtilega viðburði. Opið alla daga frá kl. 13:00-22:00. Eldhúsið er opið til klukkan 20:00.

Allur pakkinn

Gróðurhúsin, hesthúsið, veitingastaðurinn okkar og Vínstofan mynda frábæra heild sem er hægt að blanda saman á alls kyns máta – bæði fyrir einstaklinga og hópa. Hafðu endilega samband við okkur til að sérsníða upplifun sérstaklega að þinni heimsókn.

Öll okkar þjónusta er frí fyrir börn yngri en sex ára og á hálfvirði fyrir sex til þrettán ára börn.

Decorative Bubble
Decorative Bubble

Litla tómatbúðin

Í Litlu tómatbúðinni okkar er að finna alls kyns vörur framleiddar úr okkar uppskeru. Litla tómatbúðin er opin alla daga frá kl. 9:00-17:00 sem og allan sólarhringinn hér á netinu. Bæði er hægt að panta og sækja hjá okkur í Friðheimum og fá sent heim.