Vakinn og ábyrg ferðaþjónusta
Stefna fyrirtækisins er að framleiðsla og þjónusta uppfylli ávallt væntingar viðskiptavina og að fyrirtækið skili ávallt umsömdum gæðum á þeim tíma sem um er samið og viðhaldi góðum tengslum. Við vinnum eftir gæðakerfinu Vakanum sem og gæðahandbók garðyrkjunnar, þar sem allir starfsmenn taka virkan þátt í að vinna stöðugt að umbótum gæðakerfisins.
Við höfum unnið eftir Vakanum frá 2017, gæða- og umhverfisvottun fyrir íslenska ferðaþjónustu. Þau fyrirtæki sem taka þátt fá óháðan þriðja aðila til að skoða og taka út starfsemi og þjónustu fyrirtækisins, fá staðfestingu á því sem vel er gert og tækifæri til að bæta það sem betur má fara. Einnig fylgjum við gæðahandbók garðyrkjunnar, þar sem allir starfsmenn taka virkan þátt í að vinna stöðugt að umbótum gæðakerfisins. Sjá vottun Vakans 2023 hér.
Við vitum að öll fyrirtæki hafa áhrif á umhverfi og samfélag með starfsemi sinni. Okkar fyrirtæki er engin undantekning og því viljum við í Friðheimum bjóða upp á umhverfis- og félagslega ábyrga þjónustu fyrir gesti okkar. Einnig viljum við vera gott fordæmi fyrir starfsfélaga okkar innan ferðaþjónustunnar með því að axla ábyrgð og stuðla að sjálfbærum atvinnurekstri.
Friðheimar leggja sig fram við að draga úr áhrifum á umhverfið og innleiða aðgerðir til að stuðla að því. Sjálfbærnisstefna og -áætlun Friðheima hefur verið innleidd í starfsemi fyrirtækisins sem vinnur í takt við áherslur Vakans, Ábyrgrar ferðaþjónustu og gæðahandbók garðyrkjunnar. Til þess að fylgja eftir sjálfbærnistefnu og -áætlun gefa Friðheimar út sjálfbærniskýrslu árlega þar sem greint er frá árangri fyrra starfsárs og er þá Sjálfbærnistefna og -áætlun Friðheima uppfærð með tilliti til árangursins. Sjá Sjálfbærnisstefnu og -áætlun Friðheima hér.
Friðheimar hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu sem Íslenski ferðaklasinn og FESTA (miðstöð um samfélagsábyrgð) bera ábyrgð á. Einnig eru Friðheimar með vottun Vakans en það er gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar.
Þau markmið sem við höfum sett okkur má sjá hér að neðan.
Tryggja öryggi gesta okkar og koma fram við þá af háttvísi
- Betrumbæta þjálfunarplan fyrir starfsfólk okkar
- Setjum okkur gildi og vinnum eftir þeim
- Setjum upp viðbragðsáætlun og þjálfum starfsfólk okkar í fyrstu hjálp og viðhöldum þeirri þjálfun á tveggja ára fresti
Virða réttindi starfsfólks
- Betrumbæta árleg starfsmannaviðtöl
- Betrumbæta þjálfunarferli nýrra starfsmanna
- Vinna með Fairtrade hugsun „sanngjörn viðskipti“ að leiðarljósi í okkar innkaupum og framleiðslu
- Vinna eftir jafnlaunastefnu Friðheima og viðhalda Jafnlaunastaðfestingu
Hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið
- Versla í héraði
- Styrkja fjáraflanir í nærsamfélaginu
- Taka allt það fjármagn sem safnast sem þjórfé árlega og afhenda góðgerðarmálefni sem starfsfólk velur sameiginlega
- Benda gestum okkar á fleiri áhugaverða staði í nágrenninu til að auka líkur á því að fólk stoppi lengur inni á svæðinu
- Halda á lofti sögu ylræktar á Íslandi með upplýsingavegg
Ganga vel um og virða náttúruna
- Flokka sorp eins og best verður á kosið
- Nota umhverfisvænar vörur þegar mögulegt er
- Betrumbæta pakkningar og færa okkur í eins umhverfisvænt og möguleiki er á án þess að skerða gæði matvörunnar
- Skoða þátttöku í verkefninu Kolviður en það byggist á að kolefnisjafna fyrirtækið með plöntun trjáa
- Stuðla að pappírslausum viðskiptum eftir fremsta megni